18. apríl 2007 klukkan 20:35
(Vignir)
Það má nú með sanni segja að lítið hafi gerst á bæ fimbulfamsins. Elstu menn muna ekki einu sinni hvenar síðustu leikar fóru fram og verður það því að teljast ansi lélegt. En nú fer að glæðast í þessu öllu saman því fastlega er stefnt að því að famba núna næsta laugardag.
Nú, þar sem eftirvæntingin er mikil og margir vilja vera með er spurning um staðinn sem á spila á. Mjög líklega verðum við heima hjá Guffa, en ef að fjöldin verður svaðalegur verðum við að finna einhver önnur húsakynni, Valli og Tinna, spjótin beinast að ykkar glæsihýsi :) engin pressa!
Stefnt var að því að hafa þetta spil með veglegri kanntinum, sem ég get ekki að svo stöddu greint frá núna, en þau áform verða að bíða betri tíma.
Annað, henni Önnu datt í hug, í sumar að halda smá grill og spil á eftir, gætum þá jafnvel spilað undir berum himni! Spennadi! Finnst þér það ekki ? hélt það líka....
En semsagt, famb næsta laugardag, svona um 10 leytið....Fjölmennum !
Gott væri að tilkynna ef að þið ætlið að vera með.
Fimbulfamb
19. febrúar 2007 klukkan 21:52
(Guffi)
Já eins og Vignir kom svo vel að orði hér að neðan þá er þessi síða á niðurleið! Svo mikil er vosbúðin að það er ekki enn komin færsla um síðasta famb sem fór fram fyrir akkúrat mánuði síðan, 19. janúar, og var jafnframt fyrsta spil á því herrans ári 2007! Þar sem svo langt síðan það var þá skrifa ég ekki umfjöllun um fambið eins og ég er vanur, heldur tilkynni hérmeð bara úrslitin. Hef ekki svo gott minni að ég geti rakið gang leiksins mánuði eftir spil! En það fór svo:
1. Guffi (28)
2. Rúna (27)
3-4. Vignir (20)
3-4. Snorri (20)
Ekki var langt milli efstu tveggja, en eins og sjá má þá luku bæði við spilið (spilið er 27 stig). Guffi hafði þó vinninginn í dramatískri lokaumferð. Vignir átti slappan dag og deildi sæti með Snorra, litla bróðir Guffa.
Svo var nú það. En við Vignir, vefstjórarnir sjálfir, vorum núna í kvöld að ræða hugmyndir um að krydda spilið svolítið. Ég ætla ekki að upplýsa þær hugmyndir að svo stöddu, en það kemur tilkynning hér á síðuna þegar þetta er allt fullmótað, sem verður vonandi sem fyrst. Þá sjáum við hvernig mannskapurinn tekur í og getum skeggrætt tilteknar hugmyndir alveg í þaula!
En þangað til næst, haldið í ykkur frumþörfunum (fambþörfum), því nú fara leikar að æsast!
Later!
(Vek athygli á nýju orði dagsins í Pokahorninu)
07. febrúar 2007 klukkan 18:15
Vignir hérna
Það er hægt að segja annað en að þessi blessaða síða hefur legið í davla, í talsvert langan tíma. Kannski vegna þess að það hefur lítið verið spilað.....Mér finnst að við verðumað fjölmenna í eitt svaðalegt spilakvöld! Hvenar sem það nú verður að þá vil ég að það verði sem fyrst! Áhugasamir endilega tjáið ykkur og komið með hugmynd af dagsetningu
Fimbulfamb
04. janúar 2007 klukkan 01:31
(Guffi)
Þá er spilaárið 2006 liðið og vil ég þakka ykkur fyrir hin mörgu spil það árið! Þurfum að vera enn duglegri á nýju ári og blása Fambið upp í hæstu hæðir.
Að kveldi laugardagsins 30. desember fór fram í kyrrþey síðasta famb ársins. Tóku þar þátt tveir spilarar sem ekki hafa spilað lengi, þeir Jenni og Bjarki, auk okkur Vigni. Úrslitin voru á þá leið:
1. Vignir (28)
2. Bjarki (26)
3. Guffi (23)
4. Jenni (19)
Eins og sjá má hlotnaðist Vigni sá heiður að eiga síðasta sigur ársins! Eftir harða rimmu við Bjarka náði Vignir að skjóta sér fram yfir síðasta reit og næla sér í fyrsta sætið. Bjarki spilaði vel og skrifaði rétta skýringu við eitt orðanna, en það atvik var umdeilt mjög og farið verður betur í það hér á eftir. Undirritaður var ekki að spila upp á sitt besta og endar árið ekki vel, í þriðja sæti af fjórum mögulegum. Jenni náði ekki að fylgja eftir velgengninni frá því hann spilaði síðast, en hann vann það spil. Hér þurfti hann að sætta sig við botinn.
En að umræddu atviki. Svo er mál með vexti að Bjarki taldi sig muna skýringuna á orðinu úr eldra spili, og reyndist hún rétt. Venjulega höfum við látið vita og látið skipta um orð þegar það kemur fyrir, sem og Guffi gerði fyrr í spilinu, en það var ekki að þessu sinni. Fólk tók misvel í, en hann hafði 5 stig úr þessu, sem er þó nokkuð mikið. Lokastaðan hefði getað verið öðruvísi hefði ég leikið sama leik með það sem ég vissi, eða ef nýtt orð hefði verið tekið þegar þetta gerðist. Dæmi nú hver fyrir sig.
Áður en ég hætti vil ég vekja athygli á nýjum haus/banner á síðunni, en myndina tók ég í þessu sama spili og fannst hún vel við hæfi til að gegna þessu hlutverki.
Annað er það ekki að þessu sinni, svo er það bara spurning um næsta famb, sem mun það fyrsta árið 2007!
Adios.
16. desember 2006 klukkan 03:17
Vér virðulegir bloggverjar biðjumst velvirðingar á leti og bloggleysi í þessum útnára veraldarvefsins! En þið vitið hvað sagt er, batnandi mönnum er best að lifa. Dugleysi okkar er þó ekki einungis undirrituðum að kenna, því fátt hefur verið um fína drætti í hinum blákalda heimi Fambsins. Síðastliðnar 3 vikur hefur einungis verið haldin ein helgistund, og var það skyndifamb á fimmtudegi fyrir liðlega viku síðan. Má segja að það hafi verið hálfgerður útilegufílingur.
Spilið fór fram á Stokkseyri á bílaplani, en þó ekki undir berum himni. Spilað var í glæsihjólhýsi á Hásteinsvegi 5, og var þröngt á þingi. Dreypt var ótæpilega af áfengum mjöð og vínþrúgum, en við förum nánar í þá sálma hér rétt á eftir.
Nú ert þú, lesandi kær, eflaust kominn fram á sætisbrúnina af spenningi og eftirvæntingu, þannig við skulum vinda okkur í sjálf úrslitin:
1. Vignir (30)
2. Guffi (26)
3. Henning (20)
4. Alli (19)
5.-6. Hörður (17)
5.-6. Ösp (17)
Eftir langa mæðu, náði Vignir loks að næla sér í sigur, og gerði það vægast sagt með stæl. Talnaglöggir sjá að kappinn halaði inn heila þrjá tugi stiga sem hann innsiglaði í lokaumferð með 5 stiga slavneskum dansi, sem malaði gull. Þessi 30 stig eru nýjar síður í ævisögu Fambsins, en þetta mun vera nýtt stigamet! Fleiri rósir voru gerðar þetta afdrifaríka kvöld, því hann Alli laumaði inn réttri skýringu fljótlega í spilinu. Orðið var "Remí" og rétt svar "Jafntefli í skák", en hann gerði sér lítið fyrir og skrifaði þetta orðrétt. Við færum honum hamingjuóskir! En áfram með úrslitin. Annað sætið vermdi Guffi, sem þurfti að sætta sig við ósigur að þessu sinni eftir mikla sigurgöngu!
Nýliðinn hann Henning stóð sig með prýði í sínu fyrsta spili, en hann endaði í 3. sæti, sem verður að teljast skrambi góður árangur miðað við fyrsta spil. Keppniskapið var mikið og vildi hann ólmur taka stutt auka spil, því hann þóttist sannfærður um sigur! En ekki varð honum kápan úr því klæðinu því mannskapurinn var orðinn annað hvort ofurölvi eða uppgefinn af þreytu. Þess má geta að spilið hefur tekið á bilinu 3-4 tíma.
Alli, einnig þekktur sem heimspekingurinn lauk að spili að þessu sinni og endaði í 4. sæti. Nafnbótina "Heimspekingurinn" hlaut hann í kjölfar þessa spils, en mörg hans svör voru háfleig mjög og djúpþenkjandi, en hann fiskaði vel í þau net!
Ösp og Hörður deildu botnsætunum og er Hörður þar í kunnuglegri stöðu, en hann hefur jafnan ekki haldið dampi út spilið. Ösp sat stíft við drykkjuna, sem gæti mögulega verið valdur óvenju lélegu gengi, en þetta er hennar versta útkoma hingað til.
Og þá er nú öll sagan sögð, eða hvað?
Eins og áður kom fram var Bacchus meðal oss, og voru sumir nánari honum en aðrir. Rauðvínsflöskur fuku og bjórar tæmdust, sem skilaði sér í miklu ölæði sem kryddaði spilið. Manneskja þessi var Ösp, en daginn eftir þurfti að rifja upp fyrir henni sum atvik þetta örlagaríka kvöld. Einnig átti Alli eitt gull eftir nokkra bjórana. Þegar hann var fambi, varð honum á í messunni og las upp skýringuna í stað orðsins, og vakti það mikla kátínu meðal viðstaddra.
Sigurvegari kvöldsins átti einnig einn mola. Hörður kom með skýringuna "Lois Saha áður en hann skipti yfir í kristindóm". Eins og margir vita þá er Saha vel þekktur knattspyrnukappi, þannig þessi skýring var frekar út úr kú. En á undraverðan hátt, þá giskaði Vignir á þetta svar, spilendum til mikillar ánægju, þó sérstaklega Herði. Sér til varnar segist Vignir ekki hafa heyrt almennilega allt svarið, en dæmi hver fyrir sig og þess má geta að langt var liðið á spilið þegar atvikið átti sér stað og þreytan farin að segja til sín.
Tveir spilarar byrjuðu en luku ekki spilinu. Dúdda hóf leik frá upphafi, en sökum þreytu og slaks gengis bugaðist hún og ávkað að draga sig í hlé. Einnig mætti Unnar á svæðið í miðju spili og greip inn í miðja atburðarásina, en staldraði stutt við og virtist ekki sérlega hrifin af okkar ástkæra ylhýra fambi!
Þá er svo sem ekki frá mörgu fleira að segja, en endilega kommentið ef þið munið eftir einhverju, og þó þið hafið ekkert að segja, kommentið bara samt.
Þurfum svo að reyna að spila sem fyrst til að halda fambmenningunni gangandi!
Segjum þetta gott í bili!
(athugið, nýtt orð dagsins!)
28. nóvember 2006 klukkan 23:06
(Guffi)
Svo ég vitni í hann Vigni, þá er kominn tími til að dusta rykið af þessari síðu! Hún hefur legið óhreyfð í mikilli lægð vegna spilaleysis um helgina. Það er svo sem ekki frá miklu að segja úr undirheimum Fambsins, en komið er nýtt orð dagsins og Vignir henti inni nýrri könnun hér til vinstri.
Ætlaði svo að tékka á fólki, hvort það væru mögulega einhverjir til í Famb næstu helgi?
Látið í ykkur heyra!!
20. nóvember 2006 klukkan 03:32
(Guffi)
Það má segja að líf hafi verið í tuskunum í veröld Fambsins þessa helgina. Tekin voru tvö spil, en við byrjum auðvitað á því fyrra.
Fyrir luktum dyrum í Breiðholtinu fór fram 5 manna spil á föstudagsaftan. Spilað var heima hjá Guðríði, og voru spilarar ásamt gestgjafanum: Ég, Vignir, Odda frænka og Nói kallinn hennar. Odda hefur spilað áður, þó það sé orðin nokkur ár síðan. Nói var aftur á móti grænjaxl, en líkaði vel, eða ég veit ekki betur. En úrslitin voru:
1. Odda (27)
2-3. Guffi (22)
2-3. Vignir (22)
4. Nói (21)
5. Guðríður (18)
Eins og sjá má kom Odda, sá og sigraði okkur þrjá reynsluboltana og bónda sinn nokkuð örugglega, og endaði þar með sigurgöngu mína. Segja má að hún hafði sigurinn í hendi sér lungann úr spilinu, þrátt fyrir smá samkeppni frá okkur Vigni á köflum. Við Vignir vorum mikið til jafnir út spilið og enduðum jafnir í 2.-3. sæti. Lengi vel vorum við einir á báti í baráttu, eða að berjast við að komast fram úr Oddu, sem gekk ei, en Nói náði góðum endasprett og var alveg á hælum okkar þegar úrslit lágu fyrir. Hann sýndi fína spilamennsku og skaut Guðríði ref fyrir rass, en hún lenti í því hlutverki að reka lestina, þrátt fyrir heimavallarréttindi.
Það var mikið hlegið þetta kvöld og tók spilið rúmlega þrjár klukkustundir, en það var ekki dauður punktur í því! Vignir kom með einn svaðalegan mislestur á skýringu frá Oddu. Hennar skýring var "Bragarháttur", en Vigni tókst ekki betur til en svo að lesa það sem "Bardagaháttur"! Gaman af þessu. Man nú ekki eftir fleirum gull momentum, en ég held ég tali fyrir alla þegar ég segi að þetta hafi verið feikiskemmtilegt spil!
Þá er það seinna spilið, en það fór fram heima hjá Ösp í gærkvöldi. Þrátt fyrir að tveir hafi beilað endaði þetta samt í 7 manna spili. Það vorum ég, Vignir, Ösp, Örvar, Alli, Dúdda og Hörður. Því miður gat Alli ekki lokið spilinu, fer nánar út í það á eftir, en fyrst að úrslitum:
1. Guffi (27)
2. Ösp (24)
3. Dúdda (23)
4. Vignir (22)
5. Örvar (16)
6. Hörður (9)
Eftir ófullnægjandi árangur kvöldið áður, náði ég mér á strik þetta kvöldið og hlaut sigur fyrir vikið. Ég var kominn með góða forystu þegar vel var liðið á spilið, en lenti þá í smá þurrkatíð og fyrir vikið var Ösp og Dúdda, og svo eilítið síðar Vignir, öll komin í baráttuna! Fyrir síðustu umferð vorum ég, Ösp og Dúdda öll jöfn á sama reit, og Vignir einum á eftir, en ég náði að tryggja mér sigurinn með því að næla mér í þau 4 stig sem upp á vantaði. Ösp náði 1 stigi í þessari lokaumferð og hlaut annað sætið, en hún var búin að vera í toppbaráttunni í gegnum spilið. Dúdda byrjaði ekki sérlega vel, en var greinilega komin með tilfinninguna fyrir þessu í seinni hlutanum og endaði í 3. sæti, eftir mikla baráttu við Ösp og Vigni, sem endaði í því fjórða. Hann virðist í einhverri lægð þessa stundina. Mestan part spilsins var hann í tómu tjóni langt á eftir öllum, og stefndi allt í að hann myndi verma botnsætið. En undir endan tók hann einn mesta lokasprett í manna minnum, sem innihélt meðal annars einn 5 stiga slagara! Orðið var "Slomsa", og skrifaði hann réttu skýringuna "Stór kaka". Örvar var aftur í botnslagnum og endaði í því fimmta, og þarf hann nú að fara að endurskipuleggja leik sinn ef hann vill ekki vera þekktur sem eftirlegusauður! Um miðbik spilsins náði hann ágætum spretti, en fylgdi honum ekki eftir. Hörður var afar bugaður í þessu spili og virtist metnaðurinn alveg farinn þegar líða tók á kvöldið, og ber skýringin hans "Nenni þessu ekki lengur, er að deyja" vitni um það! Hann endaði fyrir vikið í 6. og síðasta sæti.
Þá víkur sögu okkar að honum Alla. Þegar spilið var tæplega hálfnað var hann kominn vel í glas og átti í hinum mestu erfileikum með að koma skýringum keppenda rétt út úr sér, og skildi ekki eigin skrift! Sagði hann þá setningu kvöldsins: "Ég.....skil ekki sjálfan mig!". Við lágum flest þarna í hláturskrampa af annarlegu ástandi grey Alla, og ákveðið var að hann væri óhæfur til að halda áfram keppni. Alli var nú ekki sérlega sáttur við þessa ákvörðun, en hann var í 3. sæti þegar svo var komið. En ég tel ákvörðunina rétta því eftir skamma stund hvarf hann í draumalandið meðan við lukum við spilið.
En þannig fór það, skemmtileg spilahelgi að baki. Ágætt að taka það með trompi þessa helgina því það verður ekki spilað næstu helgi vegna bústaðarferðar.
Þannig ég kveð ykkur að sinni og þakka fyrir skemmtileg spil!
12. nóvember 2006 klukkan 22:47
(Guffi skrifar)
Það má segja að spilin séu að verða skemmtilegri og spennan eykst með hverju spilinu sem líður, en hún getur ekki orðið mikið meiri en í gær! Við vorum 7 sem spiluðum, og týndi sonurinn, einnig þekktur sem Biggi (Alexanders), mætti öllum til undrunar og spilaði af krafti. Ösp lét sjá sig, þrátt fyrir vissar efasemdir í garð spilsins, en ég held þær séu allar horfnar eftir gærkvöldið! Hún dróg meira að segja tvo spilara með sér, þau Helgu Guðnýju og Hörð Holtsmann, sem skemmtu sér konunglega að því er ég best veit. Svo voru auðvitað við Vignir með í game-inu. Og svo fór:
- Guffi (28)
- Ösp (27)
- Biggi Al (24)
- Vignir (17)
- Hörður (16)
- Helga Guðný (15)
- Örvar (14)
Eins og sjá má skiptist hópurinn eiginlega í tvennt, Topp 3 og Botn 4. Ég náði að merja þriðja sigurinn í röð eftir harða baráttu við Ösp, þrátt fyrir að hafa byrjað illa í fyrstu umferðunum. En ég tókst svo á flug með fyrrnefndum niðurstöðum. Ösp spilaði vel og hélt fólk á tíma að hún myndi taka þetta þegar hún var komin með góða forystu og átti stutt eftir í endamarkið. Loka momentið var mjög dramatískt, þegar við vorum jöfn á síðasta reitnum. Ég fékk þá 2 stig meðan hún þurfti að sætta sig við 1 stig og annað sætið. Biggi var skammt undan og krækti sér í 3. sætið með jafnri spilamennsku. Hann kom að vísu inn í spilið þegar 2-3 umferðir voru liðnar. Þá komum við að neðri slagnum, þar sem mjög mjótt var á mununum! Vignir hafði þó vinningin þar og endaði í fjórða sæti, en hann virtist ekki vera í sínu besta famb formi í gær, óvenjulegt að sjá hann svona neðarlega. Hörður fylgdi fast á eftir honum, en hann náði ekki að fylgja eftir sínu fljúgandi starti. Helga og Örvar tóku 5. og 6. sætið, en þau náðu sér aldrei almennilega á strik.
Spilið gekk rosalega vel fyrir sig þrátt fyrir mikinn mannsöfnuð, en undir lokin þá voru komnir nokkrir áhorfendur! Biggi lenti svo í frekar óheppilegu atviki, sem varð honum dýrkeypt, og hafði líklega af honum 2. sætið, og jafnvel sigur. Það var þannig að Hörður var fambi, og af því rétta skýringin var svo stutt (vettlingur) þá ákvað hann að þykjast skrifa töluvert meira til að blekkja mannskapinn. Það virkaði greinilega vel því Biggi var búinn að skrifa vettlingur, en ákvað að hætta við það því Hörður var svo lengi að skrifa. Missti af nokkrum stigum þar.
Eins og sjá má gekk Ösp best af nýliðum kvöldsins, og er þetta með betri byrjunum hjá nýliða. Sigurjón og Guðjón Már eru þeir einu sem hafa náð að vinna í fyrsta skipti, þannig þetta verður að teljast góður árangur.
Það var nokkuð um stigasúpur, og það voru ég, Biggi og Ösp sem deildum hæstu stigum í stakri umferð, en þau voru 4 talsins.
Þetta var svona það helsta, held að allir hafi skemmt sér vel og ég vil bara þakka fyrir kvöldið!
Með sigurkveðjum,
Guffi!
ps. Ösp, þarf svo að fá myndirnar sem þú tókst til að henda þeim inn á síðuna...
10. nóvember 2006 klukkan 00:02
Guffi og Vignir speaking!
Eftir að allt fór í háaloft í síðustu færslu höfum við ákveðið að henda inn einni færslu. Fyrsta ætlum við að vekja athygli ykkar, lesendur góðir, á yfirgripsmiklum breytingum sem orðið hafa á síðunni. Þar má telja tvær nýjar undirsíður hér til vinstri, en þær eru "Í Mynd" og "Gólden Móments". Á þeirri fyrrnefndu má sjá myndir sem hafa verið teknar í spilum, og munu fleiri bætast við eftir því sem tíminn líður. "Gólden Móments" inniheldur hins vegar hin ýmsu minnisstæðu atvik sem átt hafa sér stað í gegnum árin í sögu Fambins. Þar finna allir eitthvað við sitt hæfi og er þetta hin skemmtilegasta lesning! Þannig við mælum eindregið með að þið takið ykkur augnabliks hlé frá ysi og þysi hins daglega lífs og tékkið á þessu! Endilega líka láta okkur vita ef þið lumið á einhverjum mómentum sem okkur hefur yfirsést. Einnig hentum við inn orði dagsins, og nýrri könnun, þannig það er nóg að bíta og brenna fyrir ykkur fambþyrsta einstaklingana!
En yfir kjarna málins! Spil næstu tvo laugardaga! Hverjir vilja spila núna næsta laugardag? Förum út í bókanir fyrir þarnæsta laugardag eftir helgina! En þá v erður spilað heima hjá Guðríði í Breiðholtinu!
Látið í ykkur heyra, og endilega ristið nafn ykkar í gestabókina, hún er farin að safna ryki!
UPDATE:
Við erum orðin fjögur sem ætlum að spila núna á laugardaginn. Ég, Guðríður, Vignir og Ösp, sem mun spila þetta í fyrsta skipti ef hún beilar ekki!
Með fambkveðjum,
Síðustjórar, Vignir og Guffi!
03. nóvember 2006 klukkan 21:55
(Guffi)
Einu mest spennandi spili í manna minnum lauk seint í gærkvöldi og var merkilegt á nokkra vegu. Meðal annars spilaði Rúna, en fyrir þá sem ekki eru vel að sér, þá er hún móðir mín kær, og Snorri tók einnig þátt og er þar með yngsti keppandinn til að spila í sögu spilsins. Það athyglisverðasta við spilið var þó líklega að 4/5 keppendum voru úr sömu fjölskyldu. Magnað nokk! En að úrslitum:
1. Guffi (27)
2. Vignir (26)
3. Rúna (24)
4. Guðríður (19)
5. Snorri (13)
Eins og glöggir sjá, þá sigraði undirritaður annað skiptið í röð, en tæpt var það þó. Eftir vægast sagt hræðilega byrjun náði ég mér á strik, sótti hart að Vigni og Rúnu í síðari hluta spilsins og kreisti út sigur í lokin. Vignir tók þvílíkt og annað eins fljúgandi start, og var kominn úr sjónmáli strax í byrjun. Þegar líða tók á missti hann þó flugið, en var ávallt í toppslagnum, og endaði eins og sjá má í öðru sæti, einungis stigi á eftir. Rúna var ofarlega allt spilið og spilaði nokkuð jafnt, þó stigunum hafi fækkað aðeins í endann, sem gerði það að verkum að hún tapaði baráttunni um 2 sæti. Gengi Guðríðar var upp og ofan, en hún náði sér aldrei á almennilegt flug. Hún var í raun aldrei í neinni sérstakri baráttu, því Rúna var töluvert fyrir framan hana, og svo Snorri í fjarska í baksýnisspeglinum. Hann stóð sig þó ágætlega alveg miðað við ungan aldur og reynsluleysi.
Stigakóngarnir í stakri umferð voru aftur tveir, Rúna með réttu skýringuna "Illa búinn og kuldalegur" við orðið "Glænæpulegur", og ég með skýringuna "Þriðja geirvartan" við orðið "Kókmella". Hlutum við 4 stig fyrir þessar skýringar.
Þetta var mjög skemmtilegt spil og ríkti skemmtilegur andi yfir. Mörg gullkorn litu dagsins ljós og hlegið var dátt. Í kjölfar þess skora ég á Vigni að gera nýja undirsíðu með frægum momentum og gullkornum, gömlum sem nýjum, úr sögu fambsins.
Segjum þetta í bili, sjáumst aftur von bráðar!