Auglýsing

Könnun

Skrifar þú svokölluð gullkorn í fambinu?

Laugardags Læti

10. nóvember 2006 klukkan 00:02
Guffi og Vignir speaking!

Eftir að allt fór í háaloft í síðustu færslu höfum við ákveðið að henda inn einni færslu. Fyrsta ætlum við að vekja athygli ykkar, lesendur góðir, á yfirgripsmiklum breytingum sem orðið hafa á síðunni. Þar má telja tvær nýjar undirsíður hér til vinstri, en þær eru "Í Mynd" og "Gólden Móments". Á þeirri fyrrnefndu má sjá myndir sem hafa verið teknar í spilum, og munu fleiri bætast við eftir því sem tíminn líður. "Gólden Móments" inniheldur hins vegar hin ýmsu minnisstæðu atvik sem átt hafa sér stað í gegnum árin í sögu Fambins. Þar finna allir eitthvað við sitt hæfi og er þetta hin skemmtilegasta lesning! Þannig við mælum eindregið með að þið takið ykkur augnabliks hlé frá ysi og þysi hins daglega lífs og tékkið á þessu! Endilega líka láta okkur vita ef þið lumið á einhverjum mómentum sem okkur hefur yfirsést. Einnig hentum við inn orði dagsins, og nýrri könnun, þannig það er nóg að bíta og brenna fyrir ykkur fambþyrsta einstaklingana!

En yfir kjarna málins! Spil næstu tvo laugardaga! Hverjir vilja spila núna næsta laugardag? Förum út í bókanir fyrir þarnæsta laugardag eftir helgina! En þá v erður spilað heima hjá Guðríði í Breiðholtinu!

Látið í ykkur heyra, og endilega ristið nafn ykkar í gestabókina, hún er farin að safna ryki!


UPDATE:

Við erum orðin fjögur sem ætlum að spila núna á laugardaginn. Ég, Guðríður, Vignir og Ösp, sem mun spila þetta í fyrsta skipti ef hún beilar ekki!


Með fambkveðjum,
Síðustjórar, Vignir og Guffi!
Fimbulfamb
Almennt |
Guðríður
 
Örvar og Jenni voru eh að spyrja út í famb....???

Eru Örvar og Jenni hættir við...???

Örvar og Jenni vinsamlegast látið í ykkur heyra...
10. nóvember 2006 klukkan 06:23
Það er greinilegt að þessir tveir eru ekki tíðir gestir á þessari síðu! hmmm.....en já endilega að láta vita ef þið viljið vera með, gildir um alla!
11. nóvember 2006 klukkan 00:11
jenni
 
þar sem að ég kíki daglega á síðuna reykna ég með því að ég sé tíður gestur...

ég get ekki spilað þessa helgi.. næsta helgi hljómar mun betur, gæti jafnvel verið að ég nái að draga Alexöndru með mér
11. nóvember 2006 klukkan 01:18
u.. hvenar verður spilað?...en ég verð örugglega memm..
11. nóvember 2006 klukkan 04:11
Guðríður
 
Ég segi mig formlega úr fambinu í bráð.
Það þýðir að ég cancel-a fambi næstu helgi. Annað hvort hefur fambið breyst eða ég eða kannski bara hópurinn í kringum það...

Hvað sem það er hef ég ekki áhuga að taka þátt í verðandi fömbum...
12. nóvember 2006 klukkan 06:36
Hvaða hvaða, hef enga trú á þessu, Fambið dregur þig aftur til sín! Var farið að hlakka til bæjarfambs :/
12. nóvember 2006 klukkan 22:45

Skrifa athugasemd