Helgartvenna
20. nóvember 2006 klukkan 03:32
(Guffi)
Það má segja að líf hafi verið í tuskunum í veröld Fambsins þessa helgina. Tekin voru tvö spil, en við byrjum auðvitað á því fyrra.
Fyrir luktum dyrum í Breiðholtinu fór fram 5 manna spil á föstudagsaftan. Spilað var heima hjá Guðríði, og voru spilarar ásamt gestgjafanum: Ég, Vignir, Odda frænka og Nói kallinn hennar. Odda hefur spilað áður, þó það sé orðin nokkur ár síðan. Nói var aftur á móti grænjaxl, en líkaði vel, eða ég veit ekki betur. En úrslitin voru:

1. Odda (27)
2-3. Guffi (22)
2-3. Vignir (22)
4. Nói (21)
5. Guðríður (18)
2-3. Guffi (22)
2-3. Vignir (22)
4. Nói (21)
5. Guðríður (18)
Eins og sjá má kom Odda, sá og sigraði okkur þrjá reynsluboltana og bónda sinn nokkuð örugglega, og endaði þar með sigurgöngu mína. Segja má að hún hafði sigurinn í hendi sér lungann úr spilinu, þrátt fyrir smá samkeppni frá okkur Vigni á köflum. Við Vignir vorum mikið til jafnir út spilið og enduðum jafnir í 2.-3. sæti. Lengi vel vorum við einir á báti í baráttu, eða að berjast við að komast fram úr Oddu, sem gekk ei, en Nói náði góðum endasprett og var alveg á hælum okkar þegar úrslit lágu fyrir. Hann sýndi fína spilamennsku og skaut Guðríði ref fyrir rass, en hún lenti í því hlutverki að reka lestina, þrátt fyrir heimavallarréttindi.
Það var mikið hlegið þetta kvöld og tók spilið rúmlega þrjár klukkustundir, en það var ekki dauður punktur í því! Vignir kom með einn svaðalegan mislestur á skýringu frá Oddu. Hennar skýring var "Bragarháttur", en Vigni tókst ekki betur til en svo að lesa það sem "Bardagaháttur"! Gaman af þessu. Man nú ekki eftir fleirum gull momentum, en ég held ég tali fyrir alla þegar ég segi að þetta hafi verið feikiskemmtilegt spil!
Þá er það seinna spilið, en það fór fram heima hjá Ösp í gærkvöldi. Þrátt fyrir að tveir hafi beilað endaði þetta samt í 7 manna spili. Það vorum ég, Vignir, Ösp, Örvar, Alli, Dúdda og Hörður. Því miður gat Alli ekki lokið spilinu, fer nánar út í það á eftir, en fyrst að úrslitum:

1. Guffi (27)
2. Ösp (24)
3. Dúdda (23)
4. Vignir (22)
5. Örvar (16)
6. Hörður (9)
2. Ösp (24)
3. Dúdda (23)
4. Vignir (22)
5. Örvar (16)
6. Hörður (9)
Eftir ófullnægjandi árangur kvöldið áður, náði ég mér á strik þetta kvöldið og hlaut sigur fyrir vikið. Ég var kominn með góða forystu þegar vel var liðið á spilið, en lenti þá í smá þurrkatíð og fyrir vikið var Ösp og Dúdda, og svo eilítið síðar Vignir, öll komin í baráttuna! Fyrir síðustu umferð vorum ég, Ösp og Dúdda öll jöfn á sama reit, og Vignir einum á eftir, en ég náði að tryggja mér sigurinn með því að næla mér í þau 4 stig sem upp á vantaði. Ösp náði 1 stigi í þessari lokaumferð og hlaut annað sætið, en hún var búin að vera í toppbaráttunni í gegnum spilið. Dúdda byrjaði ekki sérlega vel, en var greinilega komin með tilfinninguna fyrir þessu í seinni hlutanum og endaði í 3. sæti, eftir mikla baráttu við Ösp og Vigni, sem endaði í því fjórða. Hann virðist í einhverri lægð þessa stundina. Mestan part spilsins var hann í tómu tjóni langt á eftir öllum, og stefndi allt í að hann myndi verma botnsætið. En undir endan tók hann einn mesta lokasprett í manna minnum, sem innihélt meðal annars einn 5 stiga slagara! Orðið var "Slomsa", og skrifaði hann réttu skýringuna "Stór kaka". Örvar var aftur í botnslagnum og endaði í því fimmta, og þarf hann nú að fara að endurskipuleggja leik sinn ef hann vill ekki vera þekktur sem eftirlegusauður! Um miðbik spilsins náði hann ágætum spretti, en fylgdi honum ekki eftir. Hörður var afar bugaður í þessu spili og virtist metnaðurinn alveg farinn þegar líða tók á kvöldið, og ber skýringin hans "Nenni þessu ekki lengur, er að deyja" vitni um það! Hann endaði fyrir vikið í 6. og síðasta sæti.
Þá víkur sögu okkar að honum Alla. Þegar spilið var tæplega hálfnað var hann kominn vel í glas og átti í hinum mestu erfileikum með að koma skýringum keppenda rétt út úr sér, og skildi ekki eigin skrift! Sagði hann þá setningu kvöldsins: "Ég.....skil ekki sjálfan mig!". Við lágum flest þarna í hláturskrampa af annarlegu ástandi grey Alla, og ákveðið var að hann væri óhæfur til að halda áfram keppni. Alli var nú ekki sérlega sáttur við þessa ákvörðun, en hann var í 3. sæti þegar svo var komið. En ég tel ákvörðunina rétta því eftir skamma stund hvarf hann í draumalandið meðan við lukum við spilið.
En þannig fór það, skemmtileg spilahelgi að baki. Ágætt að taka það með trompi þessa helgina því það verður ekki spilað næstu helgi vegna bústaðarferðar.
Þannig ég kveð ykkur að sinni og þakka fyrir skemmtileg spil!

Fimbulfamb
Almennt |
Almennt |
Annars komu skondin orð og setningar eins og td "að ganga með opin rassinn" minnir mig að það hafi verið og skýringin hans Nóa var lekandi aftansöngur sem fékk samt ekki það mörg stig eða eitthvað svoleiðis, svo orðið við frábæra hláturskastið hennar Oddu, Leðurbaka.
Svo var Guffi yfirþyrmandi lúmskur þegar hann giskaði á sína eigin skýringu í von um ða veiða stig, ég var nýbúin að lesa upp allar skýringarnar en las hans óvart upp tvisvar.. þá kom hjá Guffa, kannski ég giski á þessa skýringu svona fyrst þú last hana tvisvar.. Það gekk ekki betur en svo að hann var sá eini sem giskaði á þá skýringu ;)
En pældu í því að engin fékk sér jólaöl...!?!??!?!
Næsta bæjarfamb verður ekki svona exclusive, ég var bara ekki í stuði fyrir fjölda fólks :P