31. október 2006 klukkan 22:38
Goofy the moofy hérna!
Gudda systir er að koma á fimmtudeginum á Eyrina, en hverfur aftur í borg óttans deginum eftir. Málið er að henni dauðlangar að spila, er orðin æst í að komast á blað hérna á síðunni! Þannig ég held það liggi í augum uppi hvað verið er að falast eftir hérna.
Þannig ég spyr ykkur, hver er til í snemmbúið fimmtudagsspil? Yrði á svipuðum tíma og síðasta spil, svona um kl: 20:00.
Látið heyra í ykkur, við systkynin erum allavega til.
ps. nýtt orð dagsins...
28. október 2006 klukkan 04:46
(Guffi ritar)
Þá er fjörugu fambi aflokið og vér höfum nýjan sigurvegara! Eftir harða og skemmtilega baráttu rann sigurinn úr greipum Vignis yfir til mín. Úrslitin voru:
1. Guffi (27)
2. Vignir (24)
3-4. Nonni (21)
3-4. Steini (21)
5. Örvar (11)
6. Herdís (7)
Eins og sjá má enduðu gömlu jaxlarnir í topp 3, og undirritaður nældi sér í sigur eftir öflugan endasprett. Vignir hreppti annað sætið, en allt leit út fyrir að hann myndi valta þetta eftir stigasúpur í nokkrum umferðum í seinni hluta spilsins. En hann hélt ekki út og því fór sem fór. Steini var í harðri baráttu við Nonna og skildu þeir jafnir í lok spils. Nonni byrjaði af krafti með 4 stiga sleggju sem hann slengdi á keppendur, og byrjaði spilið almennt mjög vel. Var kominn með góða forystu þegar hægja tók á honum og aðrir fóru að sækja í sig veðrið. Örvar náði ekki að koma fram þeim hefndum sem hann var búinn að rausa um, en hann endaði í fimmta sæti, 4 stigum á undan Herdís. Herdís náði sér heldur aldrei á strik, og náði þeim vafasama árangri að ná ekki tveggja stafa tölu. Hún var ekki að sýna sína gömlu takta, en nú hefur hún harma að hefna í næsta spili!
Stigakóngar í stakri umferð voru tveir að þessu sinni. Vignir með skýringuna "Löt vinnukona sem neitar að vinna." við orðið "Kotaklessa" og svo Nonni með skýringuna "Þegar tíkur eignast dauð afkvæmi" við orðið "Blágot". Hlutu þeir 4 stig fyrir þessar skýringar sínar!
Já, þetta var skemmtilegt spil og gekk alveg furðu hratt fyrir sig. Oft eiga spilin það til að dragast á langinn, en sú var þó ekki raunin í kvöld. Nú er ég svo búinn að uppfæra "Spilarar" og "Spila Yfirlit", allt að gerast.
Ætla að slíta þessu hér og nú, verður vonandi stutt í næsta spil!
26. október 2006 klukkan 21:04
Guffi hér enn og aftur!
Þá er það komið, við verðum 7 sem spilum á morgun. Steini bættist í hópinn, og nú er bara eiginlega ekki pláss fyrir fleiri að þessu sinni, því er og miður. En þetta þýðir það að gamli kjarninn sem ég minntist á í síðustu færslu (ég, Biggi, Steini og Vignir) verður allur samankominn við spilaborðið. Það hefur ekki gerst síðan elstu menn muna! Þannig þetta verður vægast sagt áhugavert.
Lokahópurinn telur þá:
Biggi
Guffi
Herdís
Nonni
Steini
Vignir
Örvar
Það er enginn vafi á því að það verður líf í tuskunum hér á bæ annað kvöld og mætast þar stálin stinn. Nú þarf fólk að fara að koma sér í gírinn, því þetta er að bresta á!
Henti svo inn öðru orði dagsins fyrst ég var að uppfæra síðuna!
Við sjáumst á morgun!
Eitt í lokinn, Komin er ný könnun!
Vignir.
25. október 2006 klukkan 22:03
Guffi reporting!
Tveir keppendur til viðbótar hafa staðfest komu sína, en það eru þeir Örvar og Biggi (Alexanders). Örvar er nýr í fambheiminum, en hann hefiur einungis spilað einu sinni áður, og það gekk nú ekki sérdeilis vel hjá honum þá! Þannig hann hefur hér tækifæri til að bæta mannorð sitt.
Biggi er gamall í hettunni þegar kemur að fambinu. Hann er hluti af gamla kjarnanum í þessu spili, en sá kjarni var ég, Vignir, Steini og Biggi, en þeir tveir síðari hafa verið afar latir við að spila þetta lengi! Biggi var með endurkomu hér fyrir einhverjum mánuðum, en náði sér aldrei á strik! Hann hefur tækifæri til að rífa sig upp og sýna gamla takta, en hann var einn sigursælasti spilarinn á tímabili.
Þannig við erum nú orðin 6:
Guffi
Vignir
Herdís
Nonni
Biggi
Örvar
Það getur reynst erfitt að spila þegar spilarar eru fleiri en 6, en það má segja að 7 sé eiginlega hámarkið. Við sjáum bara til hvernig þetta verður, þetta kemur í ljós á endanum.
Áður en ég hætti minni ég á nýtt orð í Pokahorninu!
Með fambkveðjum, Guffi!
23. október 2006 klukkan 21:25
Jæja, Guffi hér.
Ætla að byrja á því að lýsa yfir ánægju minni með viðbrögðin, þessi síða virðist hvetja fólk til að spila, sem er ekkert nema gott! Bara endilega haldið áfram að sækja síðuna heim og tékka á nýjungum. Rétt í þessu var ég að henda inn nýju orði dagsins í "Pokahornið". Einnig var Vignir að setja inn könnun, þannig bara kjósa kjósa!
Annars verður spilað á föstudaginn næstkomandi! Staðfestir spilarar eru ég sjálfur, Vignir, Herdís og Nonni. Stefnt er að því að byrja snemma, kringum kl: 19:30 - 20:00, því ég þarf að vinna á laugardaginn, og laugardagurinn hentar illa fyrir aðra. Þannig þetta er ágætis málamiðlun. Þá er það aðalmálið...hverjir geta spilað? Kommentið hérna fyrir neðan ef þið viljið vera með!
Látið heyra í ykkur, gæti þó verið að takmarka þyrfti spilarafjölda því það gengur ekki að hafa of marga, sjáum bara til hvernig þetta fer.
Stay tuned!
22. október 2006 klukkan 08:11
Dagurinn í dag er merkisdagur. Ég (Guffi), og Vignir, fengum þá skemmtilegu hugdettu að halda uppi síðu tileinkaðri hinu blessaða Fimbulfambi, og er hún nú orðin að veruleika. Hérna munum við skrifa færslur eftir hvert spil, og oftar ef okkur finnst þörf á. Spilið verður rakið í grófum dráttum, úrslit opinberuð og fleira. Einnig setjum við kannski upp tilkynningar um komandi spil til að fá fleiri spilendur ef þess þarf.
Allar tölur og gögn á þessari síðu miðast við daginn í dag, daginn sem síðan var stofnuð (21. okt). Við flest og ef ekki öll höfum spilað oft áður, og mun fleiri en komu við sögu í kvöld, þannig nú er um að gera að spíta í lófana því hér byrja allir með fresh start. Þannig þið sem hafið spilað áður en eruð ekki enn komin á spilaralistann, þið verðið bara að vera dugleg við að spila!
Hér til vinstri er ýmissa grasa að kenna. Meðal annars er það "Pokahornið" og "Spilendur". Kynnið ykkur bara linkana, óþarfi að útskýra í tvígang þessa flokka. Meira á eftir að bætast við í náinni framtíð reikna ég með, en þetta er allavega upphafið. Klukkan er rúmlega kl. 3:00 og ég nenni ekki að ráðast í einhverjar stórframkvæmdir úr þessu.
En yfir í spil kvöldsins!
Þeir 6 útvöldu sem tóku þátt í kvöld, og eru þar með fyrstu spilendur til að komast á official spjöld Fimbulfamb sögunnar voru Guffi, Vignir, Jenni, Bjarki, Valli og Sigurjón. Ölið var ekki langt undan, þó ekki allir hafi sopið, og mikið var spjallað. Spilið tók af þeim völdum ansi langan tíma, og voru sumir orðnir pirraðir undir endan á truflunum og einbeitningarleysi. En þessu lauk og voru úrslitin eftirfarandi. Þess má geta að tölurnar í sviganum aftan við nöfnin eru stigin sem viðkomandi hlaut í spilinu.
1. Jenni (27)
2. Vignir (26)
3. Bjarki (23)
4. Valli (22)
5. Guffi (18)
6. Sigurjón (13)
Jenni tók forystu strax í upphafi spilsins og hélt henni nokkuð öruggt, allt þar til í lokin. Þá var Vignir farinn að þrýsta allverulega á hann, en náði þó ekki alla leið. Bjarki skaut sér einnig upp í topp 3 þarna undir endann, með nauma forystu á Valla, sem var nokkuð jafn allt spilið og endaði öruggt í 4. sæti. Undirritaður átti einstaklega slæman dag og ég held ég hafi sett vafasamt met, eða allavega nálægt því, þegar ég lék 7 umferðir í röð án þess að hala inn eitt einasta stig. Eftir þann myrka kafla var ég kominn í botnbaráttuna með Sigurjóni, sem náði sér aldrei á strik að þessu sinni og þurfti að sætta sig við að reka lestina lungann úr spilinu. Ég tók mig þó aðeins á í endann, sleit mig frá honum og tryggði mér 5. sætið.
Vignir var þess heiðurs aðnjótandi að hafa náð flestum stigum í einni umferð, en þau voru 4 talsins. Orðið var "Núfa", og kom drengurinn með skýringuna "Stóreygð nál", sem féll greinilega svona rosalega vel í spilendur.
Þannig var nú það, fyrsta spilið komið á skrá, og þau eiga nú eftir að verða allmörg ef við eigum eftir að nenna að halda þessari síðu uppi. Þannig endilega kíkið hingað af og til til að fylgjast með og vera með á nótunum.
Segjum þetta fínt að þessu sinni. Endilega kommentið ef þið eruð að lesa þetta!
Kv. Guffi